Þjónusta

Það sem við gerum: Almenn vélsmíði, suðuvinna, bifvélavinna, skipavinna, smábátaþjónusta, rennibekkjavinna, smurþjónusta, dekkjaviðgerðir og skipti, sala á dekkjum, síum ofl.
Höfum í vinnu 2 skipasmiði, tvo bifvélavirkja og einn menntaðann í rafmagni bifreiða. 
þetta er lítið fyrirtæki en með hátt menntunarstig í þessum fræðum. Við getum soðið nær hvað sem er, tic suða, soðið saman ál og járn ofl ofl.

Starfsmenn eru:

Remek S: 849 7276, Þórður S: 898 5463 (Bókhald og reikningar), Jan, Damian, Piotr og Przemek
Verðskrá er svo fyrir 2025:
Dagvinna = 9.709
Næturvinna = 17.190

Olíuskipti:

Vilji menn koma með síur og olíur þá er bara rukkað fyrir vinnu.
Eigum flestar gerðir af síum, perum og þurrkublöðum.

Öll dekk = Sama verð og á dekkjum í N1,Klettur ,Mitra

N1 - https://vefverslun.n1.is/voruflokkur/hjolbardar-og-tengdar-vorur

Klettur - https://www.klettur.is/dekkjaleitarvel

Mitra - https://mitra.is

Helstu samstarfsaðilar eru:

GA smíðajárn. Við reynum að hafa alltaf sama útsöluverð og hjá þeim er , flutningur vestur er þá frír. Við getum ekki lofað því algerlega þar sem verðskrá þeirra getur breyst hraðar en okkar, en við lofum því að selja vöruna á sama verði og hún var í útseldu hjá þeim þegar hún var keypt. Það sama á við um flesta/alla okkar birgja. Sömu sögu er þá að segja um m.a. Stillingu, Skeljung, Poulsen,ABvarahlutir,Autoparts og fleiri.

Önnur verð:

Það er of flókið að birta verð á öllum vörum og smáatriðum beint á síðunni, en við höfum verðskrá í Excel-skrá, sem er að finna hér fyrir neðan. Þar sem skráin tekur reglulega breytingum ber að líta á hana sem viðmið.

Það er þó ekkert mál að senda uppfærða skrá til áhugasamra viðskiptavina með tölvupósti. Í skránni er að finna allt sem við höfum selt einhvern tíma, auk fjölda annarra vara. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst, og við sendum verðskránna um hæl.

Verð á vinnu er uppfært einu sinni á ári, yfir áramót, miðað við breytingar á launavísitölu frá nóvember til nóvember.